{"id":2732,"date":"2017-09-11T12:46:22","date_gmt":"2017-09-11T12:46:22","guid":{"rendered":"http:\/\/mamman.is\/?p=2732"},"modified":"2021-04-14T14:36:54","modified_gmt":"2021-04-14T14:36:54","slug":"mer-finnst-dottir-min-eiga-thad-skilid-ad-alast-upp-hja-foreldrum-sem-hun-getur-tekid-til-fyrirmyndar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732","title":{"rendered":"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar"},"content":{"rendered":"<p><strong>Sandra Mj\u00f6ll J\u00f3nsd\u00f3ttir-Buch 28 \u00e1ra er framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Platome L\u00edft\u00e6kni og a\u00f0j\u00fankt \u00ed l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. H\u00fan hefur s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r \u00fer\u00f3a\u00f0, \u00e1samt Dr.\u00a0\u00d3lafi E. Sigurj\u00f3nssyni, n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 r\u00e6kta frumur \u00e1 ranns\u00f3knarstofum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta \u00fatrunnar bl\u00f3\u00f0fl\u00f6gur fr\u00e1 Bl\u00f3\u00f0bankanum. Sandra er gift\u00a0\u00de\u00f3r Fri\u00f0riksson, l\u00e6knir og M.Sc. \u00ed heilbrig\u00f0isverkfr\u00e6\u00f0i og saman eiga \u00feau d\u00f3tturina Birtu 2ja \u00e1ra.<\/strong> <strong>Sandra var\u00f0 fyrst \u00edslenskra kvenna til a\u00f0 hlj\u00f3ta a\u00f0alver\u00f0laun \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legri h\u00e1t\u00ed\u00f0 kvenna \u00ed n\u00fdsk\u00f6pun, EIWIIN\/GWIIN (Global women inventors and innovators network), sem Kvenfrumkv\u00f6\u00f0ull \u00e1rsins 2017. H\u00e1t\u00ed\u00f0in f\u00f3r fram \u00e1 \u00cdtal\u00edu \u00ed lok j\u00fan\u00ed. Fyrr \u00e1 \u00e1rinu var Sandra einnig valin sem Ungur og efnilegur v\u00edsindama\u00f0ur \u00e1rsins \u00e1 svi\u00f0i l\u00edfv\u00edsinda auk \u00feess a\u00f0 vera tilnefnd sem fram\u00farskarandi ungur \u00cdslendingur af JCI \u00cdsland s\u00ed\u00f0asta haust.<\/strong> <strong>Fyrirt\u00e6ki\u00f0 hennar, Platome L\u00edft\u00e6kni, hefur einnig hloti\u00f0 fj\u00f6lm\u00f6rg ver\u00f0laun en fyrirt\u00e6ki\u00f0 var vali\u00f0 Sprotafyrirt\u00e6ki \u00e1rsins af Vi\u00f0skiptabla\u00f0inu og var \u00e1 lista Frj\u00e1lsrar Verslunar yfir \u00e1hugaver\u00f0ustu sprotanna \u00ed fyrra.\u00a0 \u00de\u00e1 hefur fyrirt\u00e6ki\u00f0 hloti\u00f0 styrki \u00far t\u00e6kni\u00fer\u00f3unnarsj\u00f3\u00f0i.\u00a0<\/strong> <a href=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-3-Sandra-1.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-2738\" src=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-3-Sandra-1.jpg\" alt=\"\" width=\"985\" height=\"778\" srcset=\"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-3-Sandra-1.jpg 985w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-3-Sandra-1-300x237.jpg 300w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-3-Sandra-1-768x607.jpg 768w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-3-Sandra-1-610x482.jpg 610w\" sizes=\"(max-width: 985px) 100vw, 985px\" \/><\/a> <strong>Ranns\u00f3knir sem Sandra hefur unni\u00f0 a\u00f0 \u00e1samt samstarfsf\u00f3lki s\u00ednu koma til me\u00f0 a\u00f0 stu\u00f0la a\u00f0 framf\u00f6rum \u00ed l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i, og \u00fe\u00e1 s\u00e9rstaklega \u00e1 svi\u00f0i stofnfrumul\u00e6kninga. H\u00f3purinn hefur unni\u00f0 a\u00f0 \u00fer\u00f3un \u00e1 t\u00e6kni og a\u00f0fer\u00f0um sem gera v\u00edsindam\u00f6nnum kleift a\u00f0 rannsaka og r\u00e6kta stofnfrumur \u00e1n \u00feess a\u00f0 nota d\u00fdrafur\u00f0ir. Markmi\u00f0i\u00f0 er a\u00f0 b\u00e6ta n\u00faverandi a\u00f0fer\u00f0ir og fl\u00fdta fyrir \u00fer\u00f3un \u00e1 stofnfrumume\u00f0fer\u00f0um sem geta gagnast sj\u00faklingum.<\/strong> <strong>\u00cd starfi s\u00ednu sem a\u00f0j\u00fankt vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands kennir Sandra erf\u00f0afr\u00e6\u00f0i og v\u00edsinda- og teymisvinnu auk \u00feess a\u00f0 sitja \u00ed n\u00e1msbrautarstj\u00f3rn \u00ed L\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i. Sandra \u00e1 einnig s\u00e6ti \u00ed stj\u00f3rn hvatningarsj\u00f3\u00f0s F\u00e9lags l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0inga. H\u00fan er eftirs\u00f3ttur fyrirlesari og talar fyrir v\u00edsindum, n\u00fdsk\u00f6pun og frama ungs f\u00f3lks b\u00e6\u00f0i innanlands og erlendis. Hennar n\u00e6sta verkefni er a\u00f0 verja doktorsranns\u00f3kn s\u00edna en v\u00f6rnin mun fara fram vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00ed \u00feessari viku.<\/strong><\/p>\n<h4><em>Viltu segja okkur fr\u00e1 \u00fev\u00ed hvernig hugmyndin a\u00f0 fyrirt\u00e6kinu \u00fe\u00ednu <strong>Platome L\u00edft\u00e6kni<\/strong> kvikna\u00f0i og fr\u00e1 \u00feeirri starfsemi sem \u00fe\u00fa st\u00fdrir?<\/em><\/h4>\n<p>Fyrirt\u00e6ki\u00f0 byggir \u00e1 margra \u00e1ra ranns\u00f3knarvinnu sem a\u00f0 h\u00f3fst \u00ed kringum 2010. \u00d3li, sem er me\u00f0stofnandi, var \u00fe\u00e1 n\u00fdlega kominn aftur heim til\u00a0 \u00cdslands eftir a\u00f0 hafa loki\u00f0 doktorspr\u00f3fi \u00ed stofnfrumu- og \u00f3n\u00e6misfr\u00e6\u00f0i \u00ed Osl\u00f3 og var a\u00f0 vinna \u00ed Bl\u00f3\u00f0bankanum. Hann f\u00f3r a\u00f0 kanna m\u00f6guleikann \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta bl\u00f3\u00f0hluta, sem bl\u00f3\u00f0bankinn getur ekki nota\u00f0 og f\u00e9kk mig til li\u00f0s vi\u00f0 sig. \u00c9g kom \u00fev\u00ed inn \u00ed verkefni\u00f0 strax a\u00f0 lokinni B.Sc. gr\u00e1\u00f0u \u00ed l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i og st\u00e6kka\u00f0i verkefni\u00f0 seinna \u00ed doktorsverkefni. Samstarf okkar hefur veri\u00f0 mj\u00f6g fars\u00e6lt og vi\u00f0 vorum me\u00f0al annars fyrst til a\u00f0 s\u00fdna fram \u00e1 a\u00f0 h\u00e6gt er a\u00f0 n\u00fdta \u00fatrunnar bl\u00f3\u00f0fl\u00f6gur fr\u00e1 bl\u00f3\u00f0b\u00f6nkum til a\u00f0 r\u00e6kta stofnfrumur. Vi\u00f0 \u00e1ttu\u00f0um okkur stuttu s\u00ed\u00f0ar \u00e1 ver\u00f0m\u00e6ti \u00feessarar hugmyndar og \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0 \u00e1kv\u00e1\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 stofna fyrirt\u00e6ki, Platome L\u00edft\u00e6kni. \u00c9g t\u00f3k strax vi\u00f0 sem framkv\u00e6mdastj\u00f3ri og hefur fyrirt\u00e6ki\u00f0 gengi\u00f0 vonum framar. Vi\u00f0 erum or\u00f0in sj\u00f6 talsins og fluttum n\u00fdlega \u00ed n\u00fdtt skrifstofuh\u00fasn\u00e6\u00f0i. \u00de\u00e1 erum vi\u00f0 b\u00e6\u00f0i me\u00f0 innlenda og erlenda vi\u00f0skiptavini. \u00dea\u00f0 hefur veri\u00f0 virkilega gaman og krefjandi a\u00f0 fara \u00ed gegnum \u00feetta ferli, a\u00f0 stofna eigi\u00f0 fyrirt\u00e6ki, en \u00e9g hef \u00e1 sk\u00f6mmum t\u00edma \u00feurft a\u00f0 l\u00e6ra miki\u00f0 af n\u00fdrri \u00feekkingu enda liggur minn bakgrunnur ekki \u00ed vi\u00f0skiptum heldur v\u00edsindum.<\/p>\n<h4><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-large wp-image-2734\" src=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra-1024x768.jpg\" alt=\"\" width=\"1024\" height=\"768\" srcset=\"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra-1024x768.jpg 1024w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra-300x225.jpg 300w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra-768x576.jpg 768w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra-610x457.jpg 610w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra-1080x810.jpg 1080w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-5-Sandra.jpg 1787w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><em>N\u00fa ertu mikil framakona, og ert a\u00f0 verja doktorsritger\u00f0ina \u00fe\u00edna samhli\u00f0a \u00fev\u00ed a\u00f0 reka fyrirt\u00e6ki og heimili. Mikil umr\u00e6\u00f0a hefur veri\u00f0 upp \u00e1 s\u00ed\u00f0kasti\u00f0 \u00fear sem r\u00e6tt er um a\u00f0 starfsframi foreldra s\u00e9 oft \u00e1 kostna\u00f0 barnanna og \u00feeirra tengslamyndunar sem b\u00f6rn eiga vi\u00f0 foreldra s\u00edna. Upplifir \u00fe\u00fa ford\u00f3ma \u00ed \u00feinn gar\u00f0 vegna \u00fe\u00edns frama og finnst \u00fe\u00e9r f\u00f3lk efast um f\u00e6rni \u00fe\u00edna sem m\u00f3\u00f0ir?<\/em><\/h4>\n<p>\u00dea\u00f0 \u00fearf ekki a\u00f0 vera samansem merki \u00e1 milli \u00feess a\u00f0 r\u00e6kta eigin starfsframa og sinna ekki fj\u00f6lskyldul\u00edfi. \u00dea\u00f0 a\u00f0 vilja n\u00e1 langt \u00ed l\u00edfinu \u00fe\u00fd\u00f0ir ekki endilega a\u00f0 ma\u00f0ur gefi s\u00e9r ekki t\u00edma fyrir b\u00f6rnin. \u00dea\u00f0 hefur komi\u00f0 m\u00e9r \u00e1 \u00f3vart hva\u00f0 f\u00f3lk er tilb\u00fai\u00f0 a\u00f0 segja vi\u00f0 mig og l\u00e6tur stundum \u00fat \u00far s\u00e9r hluti sem vir\u00f0ast til \u00feess eins fallnir a\u00f0 vekja hj\u00e1 m\u00e9r sektarkennd. \u00c9g hef me\u00f0al annars veri\u00f0 spur\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed hvort a\u00f0 d\u00f3ttir m\u00edn kalli mig enn\u00fe\u00e1 m\u00f6mmu, hvort a\u00f0 h\u00fan \u00feekki mig enn\u00fe\u00e1 og svo er mj\u00f6g vins\u00e6lt a\u00f0 spyrja: Og hvar er barni\u00f0 \u00feitt? Ma\u00f0urinn minn f\u00e6r ekki \u00feessar s\u00f6mu spurningar, hann er engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur mj\u00f6g metna\u00f0arfullur og \u00ed g\u00f3\u00f0u starfi. \u00c9g sinni m\u00f6rgum verkefnum og \u00fea\u00f0 er aldrei n\u00e6gur t\u00edmi \u00ed s\u00f3larhringnum til a\u00f0 komast yfir allt. \u00deess vegna geri \u00e9g m\u00e9r vel grein fyrir \u00fev\u00ed hve d\u00fdrm\u00e6tur t\u00edminn er og \u00e9g reyni a\u00f0 n\u00fdta hverja stund sem best. \u00dea\u00f0 \u00e1 s\u00e9rstaklega vi\u00f0 um \u00feann t\u00edma sem \u00e9g \u00e1 me\u00f0 d\u00f3ttur minni. Fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan byrja\u00f0i \u00e1 leiksk\u00f3la hefur aldrei neinn annar en foreldrar hennar s\u00f3tt hana. Fj\u00f6lskyldur okkar beggja b\u00faa \u00fati \u00e1 landi og \u00fev\u00ed \u00feurfa allir \u00ed litlu fj\u00f6lskyldunni minni a\u00f0 standa saman. Alltaf. \u00deegar \u00e9g fer a\u00f0 s\u00e6kja d\u00f3ttur m\u00edna \u00fe\u00e1 slekk \u00e9g \u00e1 netinu \u00ed s\u00edmanum til a\u00f0 geta veri\u00f0 me\u00f0 henni og noti\u00f0 \u00feess. Vi\u00f0 gerum alltaf eitthva\u00f0 saman eftir leiksk\u00f3la, f\u00f6rum \u00e1 b\u00f3kasafni\u00f0, \u00ed g\u00f6ngut\u00far e\u00f0a erum heima a\u00f0 kn\u00fasast. \u00c1 f\u00f6stud\u00f6gum er alltaf k\u00f3s\u00edkv\u00f6ld, \u00fea\u00f0 er heilagt. \u00de\u00e1 t\u00f6kum vi\u00f0 eitthva\u00f0 skemmtilegt \u00e1 leigu \u00e1 b\u00f3kasafninu og horfum \u00f6ll saman \u00ed s\u00f3fanum. \u00deetta eru stundir sem d\u00f3ttir m\u00edn hlakkar til alla vikuna, og \u00e9g l\u00edka. \u00deegar d\u00f3ttir m\u00edn er komin \u00ed h\u00e1ttinn \u00e1 kv\u00f6ldin, \u00fe\u00e1 get kveikt aftur \u00e1 netinu og haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 vinna. Au\u00f0vita\u00f0 er \u00e1lagi\u00f0 misjafnt, \u00e9g hef til d\u00e6mis \u00feurft a\u00f0 fer\u00f0ast miki\u00f0 \u00feetta \u00e1r og \u00fev\u00ed fylgir t\u00f6luver\u00f0 streita. Ma\u00f0urinn minn vinnur l\u00edka miki\u00f0 en gefur s\u00e9r alltaf t\u00edma til a\u00f0 sinna fj\u00f6lskyldunni og er verkaskiptingin \u00e1 okkar heimili mj\u00f6g j\u00f6fn. \u00dea\u00f0 ganga allir \u00ed \u00f6ll verk. Annars myndi \u00feetta ekki ganga upp, vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 hj\u00e1lpast a\u00f0. Enda er \u00fea\u00f0 e\u00f0lilegt. \u00dea\u00f0 tekur t\u00edma, \u00e1r\u00e6\u00f0ni og dugna\u00f0 a\u00f0 byggja upp frama og s\u00e6kja s\u00e9r menntun. Ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 f\u00f3rna \u00fdmsu. \u00dea\u00f0 a\u00f0 vera ungt foreldri a\u00f0 byggja upp frama \u00fe\u00fd\u00f0ir samt ekki endilega a\u00f0 ma\u00f0ur velji a\u00f0 f\u00f3rna t\u00edmanum me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni. Kannski velur ma\u00f0ur bara a\u00f0 f\u00f3rna einhverju \u00f6\u00f0ru. M\u00e9r finnst \u00fev\u00ed alveg \u00f3tr\u00falegt \u00feegar \u00e9g s\u00e9 a\u00f0ra alh\u00e6fa um a\u00f0 f\u00f3lk sem a\u00f0 \u00e6tlar s\u00e9r a\u00f0 n\u00e1 langt \u00ed l\u00edfinu gleymi a\u00f0 r\u00e6kta tengslin vi\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn, l\u00edkt og \u00fea\u00f0 gangi yfir alla. \u00c9g hreinlega get ekki veri\u00f0 samm\u00e1la og m\u00e9r finnst a\u00f0 unga f\u00f3lki\u00f0 okkar eigi betra skili\u00f0 en a\u00f0 vera \u00e1s\u00f6ku\u00f0 um a\u00f0 vera sl\u00e6mir foreldrar. M\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 skj\u00f3ta sk\u00f6kku vi\u00f0 a\u00f0 \u00ed samf\u00e9lagi \u00fear sem vi\u00f0 metum jafnr\u00e9tti og j\u00f6fn t\u00e6kif\u00e6ri s\u00e9um vi\u00f0 a\u00f0 hn\u00fdta \u00ed \u00fe\u00e1 sem kj\u00f3sa a\u00f0 lifa eftir gildum \u00feess og s\u00e6kja s\u00e9r b\u00e6\u00f0i menntun og frama. \u00dea\u00f0 hefur lengi veri\u00f0 krafa a\u00f0 auka hlut kvenna \u00ed \u00fdmsum \u00f6ngum okkar samf\u00e9lags. En ef vi\u00f0 viljum raunverulega breyta hlutunum \u00fe\u00e1 \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 vera \u00fe\u00e6r fyrirmyndir sem vi\u00f0 hef\u00f0um vilja\u00f0 sj\u00e1 \u00feegar vi\u00f0 vorum yngri. \u00deetta \u00e1 a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u ekki bara vi\u00f0 um konur, \u00feetta \u00e1 vi\u00f0 um alla. M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar og \u00e9g reyni \u00fev\u00ed a\u00f0 vera eins sterk og g\u00f3\u00f0 fyrirmynd og \u00e9g get. Fyrir hana. Ef \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 \u00e9g \u00feurfi a\u00f0 s\u00fdna kjark og synda \u00e1 m\u00f3ti straumnum, \u00fe\u00e1 geri \u00e9g \u00fea\u00f0. \u00c9g er ekki verri m\u00f3\u00f0ir fyrir viki\u00f0. <a href=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-large wp-image-2735\" src=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra-1024x576.jpg\" alt=\"\" width=\"1024\" height=\"576\" srcset=\"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra-1024x576.jpg 1024w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra-300x169.jpg 300w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra-768x432.jpg 768w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra-610x343.jpg 610w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra-1080x608.jpg 1080w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-2-Sandra.jpg 1280w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/a><\/p>\n<h4><em>Hvernig er d\u00e6miger\u00f0ur dagur hj\u00e1 \u00fe\u00e9r?<\/em><\/h4>\n<p>Hj\u00e1 m\u00e9r er enginn dagur d\u00e6miger\u00f0ur. Einn daginn er \u00e9g a\u00f0 kenna \u00ed h\u00e1sk\u00f3lanum, \u00feann n\u00e6sta er \u00e9g a\u00f0 einangra erf\u00f0aefni \u00e1 ranns\u00f3knarstofunni og \u00feann \u00feri\u00f0ja er \u00e9g flogin \u00e1 vi\u00f0skiptafundi \u00ed Bandar\u00edkjunum. \u00c9g \u00fearf a\u00f0 vera mj\u00f6g sveigjanleg \u00fev\u00ed hlutirnir og pl\u00f6nin breytast hratt og \u00fe\u00e1 \u00fearf \u00e9g a\u00f0 geta brug\u00f0ist vi\u00f0. En svona a\u00f0 jafna\u00f0i \u00fe\u00e1 fer \u00e9g \u00e1 f\u00e6tur 6:30 og gr\u00e6ja mig fyrir vinnu, kl\u00e6\u00f0i og sinni d\u00f3ttur minni ef h\u00fan er v\u00f6knu\u00f0 en annars s\u00e9r fa\u00f0ir hennar um \u00fea\u00f0. \u00c9g reyni a\u00f0 komast \u00fat um 7:15 til a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 vera \u00e1 undan umfer\u00f0inni og vera komin til vinnu fyrir kl. 8:00. \u00c9g er kl\u00e1rlega morgunmanneskja og \u00e9g elska a\u00f0 vera m\u00e6tt fyrst \u00ed vinnuna, f\u00e1 m\u00e9r gott kaffi og n\u00e1 a\u00f0 vinna \u00ed \u00fe\u00f6gninni \u00e1\u00f0ur en a\u00f0rir m\u00e6ta. S\u00ed\u00f0an sinni \u00e9g \u00feeim verkefnum sem liggja fyrir hvort sem \u00fea\u00f0 er fyrir framan t\u00f6lvuna, \u00feeysast \u00e1 milli funda e\u00f0a ranns\u00f3knarvinna. \u00c9g legg af sta\u00f0 heim kl 15:30 til a\u00f0 geta n\u00e1\u00f0 \u00ed d\u00f3ttur m\u00edna \u00e1 leiksk\u00f3lann. \u00de\u00e1 tekur vi\u00f0 samvera me\u00f0 henni, elda mat og sinna h\u00fasverkum. \u00deegar d\u00f3ttir m\u00edn er farin \u00ed h\u00e1ttinn eru h\u00fasverkin kl\u00e1ru\u00f0, hellt upp\u00e1 kaffi og komi\u00f0 s\u00e9r fyrir \u00ed\u00a0 s\u00f3fanum me\u00f0 t\u00f6lvuna. \u00c9g mi\u00f0a vi\u00f0 a\u00f0 vinna helst ekki lengur en til kl 11 og horfa svo kannski \u00e1 einn \u00fe\u00e1tt me\u00f0 manninum m\u00ednum \u00e1\u00f0ur en vi\u00f0 f\u00f6rum a\u00f0 sofa. S\u00ed\u00f0an er bara repeat. \u00deetta er dagskr\u00e1 sem a\u00f0 hentar m\u00e9r vel og m\u00e9r finnst ekki erfitt a\u00f0 vinna \u00e1 kv\u00f6ldin \u00fev\u00ed \u00e9g elska \u00fea\u00f0 sem \u00e9g geri. \u00c9g g\u00e6ti \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 vinna ekki \u00f6ll kv\u00f6ld \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 brennur ma\u00f0ur \u00fat. Fr\u00edkv\u00f6ldunum ey\u00f0i \u00e9g me\u00f0 manninum m\u00ednum og\/e\u00f0a vinum. \u00c9g fer l\u00edka stundum \u00fat a\u00f0 hlaupa, spila \u00e1 p\u00edan\u00f3i\u00f0 e\u00f0a les g\u00f3\u00f0a b\u00f3k til a\u00f0 n\u00e1 m\u00e9r ni\u00f0ur eftir daginn og fylla \u00e1 orkuna. <a href=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-large wp-image-2733\" src=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra-1024x768.jpg\" alt=\"\" width=\"1024\" height=\"768\" srcset=\"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra-1024x768.jpg 1024w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra-300x225.jpg 300w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra-768x576.jpg 768w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra-610x457.jpg 610w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra-1080x810.jpg 1080w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-4-Sandra.jpg 1787w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><\/a><\/p>\n<h4><em>Hugar \u00fe\u00fa vel a\u00f0 heilsunni, stundar \u00fe\u00fa einhverja hreyfingu?<\/em><\/h4>\n<p>\u00c9g tel mig hugsa vel um heilsuna en \u00fea\u00f0 eru margir \u00fe\u00e6ttir sem stu\u00f0la a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri heilsu fyrir utan hreyfingu. \u00cd gegnum t\u00ed\u00f0ina hef \u00e9g veri\u00f0 miki\u00f0 \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttum og er me\u00f0al annars me\u00f0 svarta belti\u00f0 \u00ed Taekwondo. N\u00fana reyni \u00e9g a\u00f0 fara \u00fat a\u00f0 hlaupa eins oft og \u00e9g get, kannski 2-3 \u00ed viku. \u00deess \u00e1 milli er \u00e9g me\u00f0 app \u00ed s\u00edmanum sem heitir Fitstar og tengist vi\u00f0 Fitbit \u00fari\u00f0 mitt. \u00cd \u00fev\u00ed eru 30 m\u00edn blanda\u00f0ar \u00e6fingar sem \u00e9g set \u00ed gang og get gert heima \u00e1\u00f0ur en \u00e9g fer a\u00f0 sofa. Fyrir m\u00e9r er svefn lykillinn a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri heilsu. \u00dea\u00f0 fann \u00e9g s\u00e9rstaklega \u00feegar d\u00f3ttir m\u00edn var yngri en h\u00fan var mj\u00f6g krefjandi ungabarn. \u00c9g sef aldrei minna en sex t\u00edma og stilli oft klukku til a\u00f0 segja m\u00e9r a\u00f0 fara a\u00f0 sofa. Svo erum vi\u00f0 hj\u00f3nin miki\u00f0 \u00e1hugaf\u00f3lk um mat og elskum a\u00f0 elda g\u00f3\u00f0an mat. G\u00f3\u00f0ur matur \u00far ferskum hr\u00e1efnum getur ekki anna\u00f0 en gert mann hamingjusaman, og hamingja hl\u00fdtur a\u00f0 vera mj\u00f6g g\u00f3\u00f0 fyrir heilsuna.<\/p>\n<h4>N\u00fa hefur \u00fe\u00fa s\u00e9rstaka \u00e1str\u00ed\u00f0u a\u00f0 hvetja og efla ungt f\u00f3lk til d\u00e1\u00f0a, viltu gefa ungum framakonum gott r\u00e1\u00f0 hvernig best er a\u00f0 sameina frama og fj\u00f6lskyldul\u00edf?<\/h4>\n<p>\u00c1rangur gerist ekki bara, \u00fea\u00f0 \u00fearf a\u00f0 vinna fyrir honum. Ma\u00f0ur \u00fearf oft a\u00f0 vera tilb\u00fainn a\u00f0 leggja gr\u00ed\u00f0arlega miki\u00f0 \u00e1 sig til a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 skara fram\u00far og uppskera eftir \u00fev\u00ed. \u00dea\u00f0 er \u00fev\u00ed \u00e1g\u00e6tt a\u00f0 vita \u00e1\u00f0ur en lagt er af sta\u00f0 \u00e1 framabrautina hvar m\u00f6rkin manns liggja og hvert ma\u00f0ur stefnir. A\u00f0 sameina frama og fj\u00f6lskyldul\u00edf er erfitt. \u00dea\u00f0 krefst mikils skipulags, g\u00f3\u00f0rar t\u00edmastj\u00f3rnunnar og samvinnu allra \u00e1 heimilinu. Ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 finna sitt temp\u00f3 sem a\u00f0 virkar og fylgja \u00fev\u00ed. Ef ma\u00f0ur \u00e6tlar a\u00f0 tro\u00f0a s\u00e9r \u00ed einhvern \u00f3m\u00f6gulegan farveg og l\u00ed\u00f0a illa mun \u00fea\u00f0 koma ni\u00f0ur \u00e1 \u00f6llu, vinnunni og fj\u00f6lskyldunni. Ma\u00f0ur \u00fearf a\u00f0 vera tilb\u00fainn a\u00f0 forgangsra\u00f0a og sleppa \u00fev\u00ed sem a\u00f0 skiptir minna m\u00e1li og hafa sj\u00e1lfstraust til a\u00f0 standast pressuna. \u00c9g myndi segja a\u00f0 g\u00f3\u00f0 t\u00edmastj\u00f3rnun v\u00e6ri l\u00edklega \u00fea\u00f0 mikilv\u00e6gasta. Einbeita s\u00e9r a\u00f0 vinnunni \u00feegar ma\u00f0ur er a\u00f0 vinna og ekki ey\u00f0a t\u00edmanum \u00ed rugl. Vera svo me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni eftir vinnu og vera \u00fe\u00e1 me\u00f0 virka n\u00e6rveru en ekki nefi\u00f0 \u00ed s\u00edmanum. \u00de\u00e1 getur ma\u00f0ur sleppt \u00fev\u00ed a\u00f0 vera me\u00f0 samviskubit gagnvart fj\u00f6lskyldunni \u00feegar ma\u00f0ur er a\u00f0 vinna, e\u00f0a samviskubit gagnvart vinnunni \u00feegar ma\u00f0ur er heima.\u00a0 Stundum \u00e6tlar ma\u00f0ur s\u00e9r um of, \u00feess vegna er l\u00edka mikilv\u00e6gt a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 \u00feekkja s\u00edn m\u00f6rk og hika ekki vi\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja um hj\u00e1lp \u00feegar \u00fearf. <a href=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-7-Sandra.jpg\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignnone size-full wp-image-2741\" src=\"http:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-7-Sandra.jpg\" alt=\"\" width=\"1003\" height=\"1021\" srcset=\"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-7-Sandra.jpg 1003w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-7-Sandra-295x300.jpg 295w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-7-Sandra-768x782.jpg 768w, https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-7-Sandra-610x621.jpg 610w\" sizes=\"(max-width: 1003px) 100vw, 1003px\" \/><\/a><\/p>\n<h4><em>Hva\u00f0 finnst \u00fe\u00e9r skemmtilegast vi\u00f0 m\u00f3\u00f0urhlutverki\u00f0?<\/em><\/h4>\n<p>\u00deegar \u00e9g var\u00f0 m\u00f3\u00f0ir fannst m\u00e9r skemmtilegast a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 kynnast \u00e1st upp\u00e1 n\u00fdtt. \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 svo lj\u00fafs\u00e1rt a\u00f0 elska. Upplifa \u00e1st sem vir\u00f0ist brei\u00f0a \u00far s\u00e9r l\u00edkt og alheimurinn eftir miklahvell en \u00e1 sama t\u00edma vera svo hr\u00e6dd um a\u00f0 missa. \u00deetta er eiginlega alveg einst\u00f6k tilfinning. M\u00e9r finnst l\u00edka skemmtilegt a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 upplifa heiminn upp\u00e1 n\u00fdtt \u00ed gegnum d\u00f3ttur m\u00edna. Hlutir sem eru fyrir l\u00f6ngu or\u00f0nir sj\u00e1lfsag\u00f0ir fyrir m\u00e9r eru h\u00fan a\u00f0 sj\u00e1 \u00ed fyrsta skipti og ef ma\u00f0ur leyfir s\u00e9r a\u00f0 staldra a\u00f0eins vi\u00f0 getur ma\u00f0ur fengi\u00f0 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feeirri upplifun. \u00dea\u00f0 hefur veitt m\u00e9r n\u00fdja s\u00fdn \u00e1 l\u00edfi\u00f0 og umhverfi\u00f0. \u00de\u00e1 elska \u00e9g a\u00f0 fylgjast me\u00f0 d\u00f3ttur minni l\u00e6ra n\u00fdja hluti, mynda s\u00e9r sko\u00f0anir og leyfa m\u00e9r sm\u00e1tt og sm\u00e1tt a\u00f0 sj\u00e1 hver h\u00fan er. \u00c9g er viss um a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0ur sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0 og \u00e1kve\u00f0in ung kona eftir nokkur \u00e1r sem fer s\u00ednar eigin lei\u00f0ir. \u00deeir sem hafa \u00e1huga \u00e1 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 S\u00f6ndru \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, \u00fe\u00e1 er h\u00fan me\u00f0 Instagrams\u00ed\u00f0una\u00a0<strong><a href=\"https:\/\/www.instagram.com\/sandriculous\/\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">sandriculous<\/a>.<\/strong><\/p>\n<p style=\"text-align: right;\"><em>Au\u00f0ur Eva \u00c1sberg<\/em><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<span class=\"et_bloom_bottom_trigger\"><\/span>","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sandra Mj\u00f6ll J\u00f3nsd\u00f3ttir-Buch 28 \u00e1ra er framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Platome L\u00edft\u00e6kni og a\u00f0j\u00fankt \u00ed l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. H\u00fan hefur s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r \u00fer\u00f3a\u00f0, \u00e1samt Dr.\u00a0\u00d3lafi E. Sigurj\u00f3nssyni, n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 r\u00e6kta frumur \u00e1 ranns\u00f3knarstofum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta \u00fatrunnar bl\u00f3\u00f0fl\u00f6gur fr\u00e1 Bl\u00f3\u00f0bankanum. Sandra er gift\u00a0\u00de\u00f3r Fri\u00f0riksson, l\u00e6knir og M.Sc. \u00ed heilbrig\u00f0isverkfr\u00e6\u00f0i og saman eiga \u00feau d\u00f3tturina [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":2736,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_et_pb_use_builder":"off","_et_pb_old_content":"","_et_gb_content_width":"","footnotes":""},"categories":[55],"tags":[],"class_list":["post-2732","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-foreldrar-born"],"yoast_head":"<!-- This site is optimized with the Yoast SEO plugin v27.6 - https:\/\/yoast.com\/product\/yoast-seo-wordpress\/ -->\n<title>M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar - mamman.is<\/title>\n<meta name=\"robots\" content=\"index, follow, max-snippet:-1, max-image-preview:large, max-video-preview:-1\" \/>\n<link rel=\"canonical\" href=\"https:\/\/mamman.is\/?p=2732\" \/>\n<meta property=\"og:locale\" content=\"en_US\" \/>\n<meta property=\"og:type\" content=\"article\" \/>\n<meta property=\"og:title\" content=\"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar - mamman.is\" \/>\n<meta property=\"og:description\" content=\"Sandra Mj\u00f6ll J\u00f3nsd\u00f3ttir-Buch 28 \u00e1ra er framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Platome L\u00edft\u00e6kni og a\u00f0j\u00fankt \u00ed l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. H\u00fan hefur s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r \u00fer\u00f3a\u00f0, \u00e1samt Dr.\u00a0\u00d3lafi E. Sigurj\u00f3nssyni, n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 r\u00e6kta frumur \u00e1 ranns\u00f3knarstofum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta \u00fatrunnar bl\u00f3\u00f0fl\u00f6gur fr\u00e1 Bl\u00f3\u00f0bankanum. Sandra er gift\u00a0\u00de\u00f3r Fri\u00f0riksson, l\u00e6knir og M.Sc. \u00ed heilbrig\u00f0isverkfr\u00e6\u00f0i og saman eiga \u00feau d\u00f3tturina [&hellip;]\" \/>\n<meta property=\"og:url\" content=\"https:\/\/mamman.is\/?p=2732\" \/>\n<meta property=\"og:site_name\" content=\"mamman.is\" \/>\n<meta property=\"article:author\" content=\"https:\/\/www.facebook.com\/www.mamman.is\/?eid=ARDR0ab6PkaHeNW1NqKSh6yZmtD3W-69ZHG1EvpdmTeVddncg5acZMnbGoXbFlTiSqHU74FtwqhljoBp\" \/>\n<meta property=\"article:published_time\" content=\"2017-09-11T12:46:22+00:00\" \/>\n<meta property=\"article:modified_time\" content=\"2021-04-14T14:36:54+00:00\" \/>\n<meta property=\"og:image\" content=\"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-1-Sandra.jpg\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:width\" content=\"1787\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:height\" content=\"1340\" \/>\n\t<meta property=\"og:image:type\" content=\"image\/jpeg\" \/>\n<meta name=\"author\" content=\"Mamman\" \/>\n<meta name=\"twitter:card\" content=\"summary_large_image\" \/>\n<meta name=\"twitter:label1\" content=\"Written by\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data1\" content=\"Mamman\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:label2\" content=\"Est. reading time\" \/>\n\t<meta name=\"twitter:data2\" content=\"13 minutes\" \/>\n<script type=\"application\/ld+json\" class=\"yoast-schema-graph\">{\"@context\":\"https:\\\/\\\/schema.org\",\"@graph\":[{\"@type\":\"Article\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#article\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732\"},\"author\":{\"name\":\"Mamman\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/b2a74513ca2ef75cb8d3d8cf04ddf7dd\"},\"headline\":\"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar\",\"datePublished\":\"2017-09-11T12:46:22+00:00\",\"dateModified\":\"2021-04-14T14:36:54+00:00\",\"mainEntityOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732\"},\"wordCount\":2553,\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2017\\\/09\\\/Mynd-1-Sandra.jpg\",\"articleSection\":[\"Foreldrar &amp; b\u00f6rn\"],\"inLanguage\":\"en-US\"},{\"@type\":\"WebPage\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732\",\"url\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732\",\"name\":\"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar - mamman.is\",\"isPartOf\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/#website\"},\"primaryImageOfPage\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#primaryimage\"},\"image\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#primaryimage\"},\"thumbnailUrl\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2017\\\/09\\\/Mynd-1-Sandra.jpg\",\"datePublished\":\"2017-09-11T12:46:22+00:00\",\"dateModified\":\"2021-04-14T14:36:54+00:00\",\"author\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/b2a74513ca2ef75cb8d3d8cf04ddf7dd\"},\"breadcrumb\":{\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#breadcrumb\"},\"inLanguage\":\"en-US\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"ReadAction\",\"target\":[\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732\"]}]},{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"en-US\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#primaryimage\",\"url\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2017\\\/09\\\/Mynd-1-Sandra.jpg\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/wp-content\\\/uploads\\\/2017\\\/09\\\/Mynd-1-Sandra.jpg\",\"width\":1787,\"height\":1340},{\"@type\":\"BreadcrumbList\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?p=2732#breadcrumb\",\"itemListElement\":[{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":1,\"name\":\"Home\",\"item\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/\"},{\"@type\":\"ListItem\",\"position\":2,\"name\":\"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar\"}]},{\"@type\":\"WebSite\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/#website\",\"url\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/\",\"name\":\"mamman.is\",\"description\":\"Vefur fyrir allar m\u00f6mmur\",\"potentialAction\":[{\"@type\":\"SearchAction\",\"target\":{\"@type\":\"EntryPoint\",\"urlTemplate\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?s={search_term_string}\"},\"query-input\":{\"@type\":\"PropertyValueSpecification\",\"valueRequired\":true,\"valueName\":\"search_term_string\"}}],\"inLanguage\":\"en-US\"},{\"@type\":\"Person\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/#\\\/schema\\\/person\\\/b2a74513ca2ef75cb8d3d8cf04ddf7dd\",\"name\":\"Mamman\",\"image\":{\"@type\":\"ImageObject\",\"inLanguage\":\"en-US\",\"@id\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/b72a3b8aae5456dc7ceb62ff1ca2b92131bbfa0e64cf1b1045ae7c490c0e7d3d?s=96&d=mm&r=g\",\"url\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/b72a3b8aae5456dc7ceb62ff1ca2b92131bbfa0e64cf1b1045ae7c490c0e7d3d?s=96&d=mm&r=g\",\"contentUrl\":\"https:\\\/\\\/secure.gravatar.com\\\/avatar\\\/b72a3b8aae5456dc7ceb62ff1ca2b92131bbfa0e64cf1b1045ae7c490c0e7d3d?s=96&d=mm&r=g\",\"caption\":\"Mamman\"},\"sameAs\":[\"https:\\\/\\\/mamman.is\",\"https:\\\/\\\/www.facebook.com\\\/www.mamman.is\\\/?eid=ARDR0ab6PkaHeNW1NqKSh6yZmtD3W-69ZHG1EvpdmTeVddncg5acZMnbGoXbFlTiSqHU74FtwqhljoBp\",\"www.instagram.com\\\/mamman.is\"],\"url\":\"https:\\\/\\\/mamman.is\\\/?author=1\"}]}<\/script>\n<!-- \/ Yoast SEO plugin. -->","yoast_head_json":{"title":"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar - mamman.is","robots":{"index":"index","follow":"follow","max-snippet":"max-snippet:-1","max-image-preview":"max-image-preview:large","max-video-preview":"max-video-preview:-1"},"canonical":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732","og_locale":"en_US","og_type":"article","og_title":"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar - mamman.is","og_description":"Sandra Mj\u00f6ll J\u00f3nsd\u00f3ttir-Buch 28 \u00e1ra er framkv\u00e6mdastj\u00f3ri Platome L\u00edft\u00e6kni og a\u00f0j\u00fankt \u00ed l\u00edfeindafr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. H\u00fan hefur s\u00ed\u00f0ustu \u00e1r \u00fer\u00f3a\u00f0, \u00e1samt Dr.\u00a0\u00d3lafi E. Sigurj\u00f3nssyni, n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 r\u00e6kta frumur \u00e1 ranns\u00f3knarstofum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00fdta \u00fatrunnar bl\u00f3\u00f0fl\u00f6gur fr\u00e1 Bl\u00f3\u00f0bankanum. Sandra er gift\u00a0\u00de\u00f3r Fri\u00f0riksson, l\u00e6knir og M.Sc. \u00ed heilbrig\u00f0isverkfr\u00e6\u00f0i og saman eiga \u00feau d\u00f3tturina [&hellip;]","og_url":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732","og_site_name":"mamman.is","article_author":"https:\/\/www.facebook.com\/www.mamman.is\/?eid=ARDR0ab6PkaHeNW1NqKSh6yZmtD3W-69ZHG1EvpdmTeVddncg5acZMnbGoXbFlTiSqHU74FtwqhljoBp","article_published_time":"2017-09-11T12:46:22+00:00","article_modified_time":"2021-04-14T14:36:54+00:00","og_image":[{"width":1787,"height":1340,"url":"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-1-Sandra.jpg","type":"image\/jpeg"}],"author":"Mamman","twitter_card":"summary_large_image","twitter_misc":{"Written by":"Mamman","Est. reading time":"13 minutes"},"schema":{"@context":"https:\/\/schema.org","@graph":[{"@type":"Article","@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#article","isPartOf":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732"},"author":{"name":"Mamman","@id":"https:\/\/mamman.is\/#\/schema\/person\/b2a74513ca2ef75cb8d3d8cf04ddf7dd"},"headline":"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar","datePublished":"2017-09-11T12:46:22+00:00","dateModified":"2021-04-14T14:36:54+00:00","mainEntityOfPage":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732"},"wordCount":2553,"image":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-1-Sandra.jpg","articleSection":["Foreldrar &amp; b\u00f6rn"],"inLanguage":"en-US"},{"@type":"WebPage","@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732","url":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732","name":"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar - mamman.is","isPartOf":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/#website"},"primaryImageOfPage":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#primaryimage"},"image":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#primaryimage"},"thumbnailUrl":"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-1-Sandra.jpg","datePublished":"2017-09-11T12:46:22+00:00","dateModified":"2021-04-14T14:36:54+00:00","author":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/#\/schema\/person\/b2a74513ca2ef75cb8d3d8cf04ddf7dd"},"breadcrumb":{"@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#breadcrumb"},"inLanguage":"en-US","potentialAction":[{"@type":"ReadAction","target":["https:\/\/mamman.is\/?p=2732"]}]},{"@type":"ImageObject","inLanguage":"en-US","@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#primaryimage","url":"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-1-Sandra.jpg","contentUrl":"https:\/\/mamman.is\/wp-content\/uploads\/2017\/09\/Mynd-1-Sandra.jpg","width":1787,"height":1340},{"@type":"BreadcrumbList","@id":"https:\/\/mamman.is\/?p=2732#breadcrumb","itemListElement":[{"@type":"ListItem","position":1,"name":"Home","item":"https:\/\/mamman.is\/"},{"@type":"ListItem","position":2,"name":"M\u00e9r finnst d\u00f3ttir m\u00edn eiga \u00fea\u00f0 skili\u00f0 a\u00f0 alast upp hj\u00e1 foreldrum sem h\u00fan getur teki\u00f0 til fyrirmyndar"}]},{"@type":"WebSite","@id":"https:\/\/mamman.is\/#website","url":"https:\/\/mamman.is\/","name":"mamman.is","description":"Vefur fyrir allar m\u00f6mmur","potentialAction":[{"@type":"SearchAction","target":{"@type":"EntryPoint","urlTemplate":"https:\/\/mamman.is\/?s={search_term_string}"},"query-input":{"@type":"PropertyValueSpecification","valueRequired":true,"valueName":"search_term_string"}}],"inLanguage":"en-US"},{"@type":"Person","@id":"https:\/\/mamman.is\/#\/schema\/person\/b2a74513ca2ef75cb8d3d8cf04ddf7dd","name":"Mamman","image":{"@type":"ImageObject","inLanguage":"en-US","@id":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b72a3b8aae5456dc7ceb62ff1ca2b92131bbfa0e64cf1b1045ae7c490c0e7d3d?s=96&d=mm&r=g","url":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b72a3b8aae5456dc7ceb62ff1ca2b92131bbfa0e64cf1b1045ae7c490c0e7d3d?s=96&d=mm&r=g","contentUrl":"https:\/\/secure.gravatar.com\/avatar\/b72a3b8aae5456dc7ceb62ff1ca2b92131bbfa0e64cf1b1045ae7c490c0e7d3d?s=96&d=mm&r=g","caption":"Mamman"},"sameAs":["https:\/\/mamman.is","https:\/\/www.facebook.com\/www.mamman.is\/?eid=ARDR0ab6PkaHeNW1NqKSh6yZmtD3W-69ZHG1EvpdmTeVddncg5acZMnbGoXbFlTiSqHU74FtwqhljoBp","www.instagram.com\/mamman.is"],"url":"https:\/\/mamman.is\/?author=1"}]}},"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2732","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=2732"}],"version-history":[{"count":16,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2732\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3942,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/2732\/revisions\/3942"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/2736"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=2732"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=2732"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/mamman.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=2732"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}