Kostir þess að eiga gæludýr á meðan barnauppeldi stendur
Ertu að velta fyrir þér hvort þú ættir að bæta gæludýri í fjölskylduna? Stutta svarið ætti að vera: „Já“. Hér eru nokkrar frábærar ástæður sem hjálpa þér að taka réttu ákvörðunina!
Gæludýr hjálpa börnum
Börn elska gæludýrin sín, og það er af góðri ástæðu. Dýr, hvort sem þau eru stór eða smá, veita einstakan félagsskap. Allir vita að börn elska dýr! Þú þarft ekki að leita lengi í herbergi barnsins þíns til að finna þar bækur, myndir, leikföng og fleira sem minna á dýr.
Talið er að um fjögur af hverjum 10 börnum hefji líf sitt í fjölskyldu sem heldur dýr á heimili sínu og um 90% barna alast upp með dýri á einhverjum tímapunkti æskunnar, segir Gail F. Melson, PhD,rithöfundur bókarinnar Why the Wild Things Are: Animals in the Lives of Children.
Foreldrar halda kannski að gæludýrið veiti barninu einungis skemmtun eða félagsskap, en það er svo miklu, miklu meira. Það kennir börnum samkennd, ábyrgð og hjálpar til við tilfinninga-, tauga- og félagsþroska ásamt líkamlegum þroska.
Börn læra mikið af dýrum
Börn lesa stundum fyrir dýrin sín og leika við þau í leikjum. „Það er ekkert skrýtið,” segir Mary Renck Jalongo, PhD, rithöfundur The World of Children and Their Companion Animals. Kennarar hafa löngum vitað að dýr hafa hjálpað börnum og eru meðferðardýr (aðallega hundar) oft hafðir við hlið barna sem hafa átt í náms- og þroskaerfiðleikum. Nú hafa rannsóknir sýnt að öll börn hafa ávinning af því að umgangast dýr. Í einni rannsókn voru börn sem rannsökuð voru, beðin að lesa upp fyrir framan vin, fullorðinn og hund. Rannsakendur mældu streituþröskuld barnanna og sáu að börnin voru minnst stressuð í kringum dýrið, ekki mennina: „Ef þú ert í erfiðleikum með að lesa og einhver segir við þig: „Taktu upp bókina og farðu að vinna,“ er það ekki mjög spennandi tilboð,“ segir Dr Jalongo. „Nú ef einhver býður þér að koma þér þægilega við hlið hunds eða kattar, það hljómar mun betur, ekki satt?“
Dýrin veita öryggi
Í annarri rannsókn voru börn beðin um að gefa vinafáum og óvinsælum börnum ráð, hvernig þau gætu bætt úr stöðunni. Svarið sem skoraði hæst var ekki að eignast flottasta leikfangið eða eiga dýrustu strigaskóna, heldur að eiga gæludýr. Hvort sem það væri hamstur eða hestur skipti það ekki máli, það væri að geta talað um dýrið og fundið sameiginlegan grundvöll með öðrum krökkum.
Dýr veita líka öryggiskennd. Dr. Melson spurði hóp af fimm ára börnum sem átti gæludýr hvað þau gerðu þegar þau voru leið, hrædd, reið eða byggju yfir leyndarmáli. Meira en 40% barnanna svaraði strax að þau myndu knúsa dýrið sitt. „Börnin sem fengu stuðning frá gæludýrunum sínum voru talin af foreldrum þeirra vera minna kvíðin og til baka,“ sagði hún.
Gæludýr auka samkennd
Dr. Melson hóf rannsóknir á áhrifum gæludýra á börn að sýna samkennd og hluttekningu. „Hluttekning er ekki endilega eiginleiki sem allt í einu birtist, heldur er lærður. Þó börn hafi upplifað kærleika og væntumþykju í æsku kennir það þeim ekki að vera umhyggjusöm, þau þurfa að þjálfa það.“
Það er ekki margt sem börn geta gert í að hugsa um aðra í nútímasamfélagi, annað en að hugsa um gæludýr. „Í mörgum löndum hugsa börn um systkini sín, en í Vestrænum löndum er það ekki menningarlega samþykkt. Það er í raun ólöglegt í mörgum ríkjum Bandaríkjanna að láta börn í pössun hjá unglingum undir 16 ára aldri.“
Að sýna öðrum samkennd er drengjum sérstaklega mikilvægt, segir Dr. Melson: „Að hugsa um dýr er ekki litið á sem „stelpulegt“ s.s. að passa börn, leika sér í mömmó eða með dúkkur,“ segir hún. „Stúlkur eru líklegri um átta ára aldurinn að hugsa um börn á einhvern hátt en drengir, en að hugsa um dýr er í jöfnu hlutfalli.“
Heilsa barna og gæludýr
Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var afDennis Ownby, MD, barnalækni í Augusta, er dýrahald ástæða þess að börn þróa ekki með sér ákveðin ofnæmi. Hópur hans rannsakaði 474 börn frá fæðingu fram að sjö ára aldri.
Börn sem höfðu einn til tvo hunda og/eða kött á heimilinu voru helmingi ólíklegri til að fá þau ofnæmi sem önnur börn höfðu sem ekki áttu gæludýr á heimilinu.
Börn sem áttu dýr höfðu minna dýraofnæmi, en einnig gras- og frjókornaofnæmi. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að börn sem umgangast reglulega gæludýr hafa minni astma en önnur. Enginn veit hvers vegna þetta er en Dr. Ownby hefur kenningu: „Þegar barn leikur við kött eða hund sleikir dýrið þau oft. Munnvatnið flytur bakteríur úr munni dýrsins og þessi snerting barnsins við bakteríuna getur sett ónæmiskerfi barnsins af stað og breytir því hvernig ónæmiskerfið bregsti við öðrum ofnæmisvökum.“
Gæludýr og fjölskyldubönd
Gæludýr færa fjölskylduna nær hvort öðru og sú fjölskylda verður sterkari og nánari fyrir vikið. „Alltaf þegar ég spyr börn eða foreldra hvort gæludýrin séu hluti af fjölskyldunni svara þau – oftast hissa eða móðguð – „auðvitað!“ segir Dr. Melson.
Gæludýrið er oft hvati að samverustundum fjölskyldunnar. Allir fara út að labba með hundinn, greiða honum eða gefa honum að borða, eða leika við hann á gólfinu. Það eru meira að segja bónusar sem fylgja því að horfa á kött leika sér eða að fisk í búri sínu. Að eyða slíkum tíma býður upp á núvitund og rólegheit. Ef einhver spyr þig hvað þú hefur verið að gera og þú svarar: „Ekkert“ og þegar fjölskyldur hafa allt of mikið að gera getur þetta „ekkert“ verið hvað mikilvægast í lífum þeirra!
Heimild: Parents.com