by Mamman | 17.12.2016 | Líkar við & mælir með
Hvort sem þú ert á leiðinni í brennslu, jóga eða lyfta þá verð ég að segja ykkur frá þessum flottu ræktarfötum frá Brandson! Brandson er nýtt íslenskt vörumerki sem hannar og selur íþróttafatnað fyrir konur. Ég er búin að bíða spennt eftir að eignast æfingafatnað frá Brandson og varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum með nýju fötin mín. Hér kemur svo ástæðan.
Buxurnar eru fullkomnar, þær eru háar í mittið og einnig frábær stuðningur yfir magasvæðið. Efnið í þeim er þétt og því ekki gegnsætt sem þýðir að maður getur teygt sig í ræktinni án þess að vera með g-strenginn til sýnis fyrir gesti og gangandi. Þær eru einnig einstaklega töff og vasi á hliðinni fyrir síma, hversu mikil snilld er það?!
Toppurinn frá þeim er sérlega fallegur og fæst hvítur og í fallega grænum lit. Hönnunin á honum er sérstaklega kvenleg og undirstrikar fallegar línur líkamans.
Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið sérlega dugleg að hreyfa mig uppá síðkastið en nú hef ég enga afsökun lengur! Fyrir mína parta finnst mér það svo sannarlega hvatning, til þess að koma mér aftur af stað, að eiga fallegan og góðan fatnað til að nota í ræktinni. Því er það einnig tilvalið að gefa þeim, sem langar að drífa sig af stað í ræktina, æfingafatnað frá Brandson í jólagjöf.
Ég mæli með því að þið kíkið á síðu Brandson á Facebook en allar pantanir eru í gengum heimasíðu Brandson www.brandson.is.
by Mamman | 13.12.2016 | Dekur & dúllerí, Heimilið
Nú þegar jólaundirbúningurinn er að fara á fullt, ilmurinn af smákökum og greni liggur yfir heimilum landsmanna og börnin iða í skinninu af spenningi er eitt sem gleymist stundum þangað til á síðustu stundu en það er hvernig við ætlum að leggja á fallegt jólaborð.
Það er ekkert yndislegra en að setjast niður saman á aðfangadagskvöld yfir dýrindis jólasteik með fallega skreytt borð. Oftast er einfaldleikinn fallegastur og um að gera að láta matinn njóta sín á borðinu.
Auðvelt er að skreyta borðið með fallegum dúk og svo er auðvitað mikilvægt að nota fallegt matarstell og glös. Flest lumum við á sparistelli sem stundum gleymist inní skáp og það er sko ekkert betra tilefni en jólin til að nýta það og ekki má gleyma tauservíettunum.
Um er að gera að klippa niður greni eða aðrar greinar og nota til skrauts og nota fallegan flauelsborða til að binda saman hnífapörin eða jafnvel eitthvað grófara band. Auðvelt er að láta börnin hjálpa sér við að klippa út litlar stjörnur úr pappír eða búa til merkispjöld sem hægt er svo að skrifa nöfnin á.
Einnig má oft finna eitthvað nothæft heimafyrir til að skreyta með eins og kanillengjur, jólakúlur, perlur, köngla, fallegar piparkökur og svo má ekki gleyma punktinum yfir i-ið, kerti.
Gleðilega hátíð!
by Mamman | 12.12.2016 | Næring & heilsa, Uppskriftir
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, snyrtifræðingur, einkaþjálfari og fitnessdrottning, á von á sínu fyrsta barni. Heiða, eins og hún er jafnan kölluð, lifir heilsusamlegu lífi og hugsar alla jafna vel um heilsuna. Fyrsta þriðjung meðgöngunnar fann hún fyrir þreytu og ógleði en nú þegar hún er komin lengra á leið er hún farin að stunda aftur reglulega líkamsrækt. Það má með sanni segja að Heiða geisli á meðgöngunni eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Ég bað Heiðu um að gefa lesendum mamman.is fimm góð ráð til að fylgja á meðgöngu og spurði einnig örlítið út í óléttuna. Hún gefur lesendum líka eina einfalda uppskrift af múffum, með eplum og kanil, sem eru algjört nammi.
“Ég á von á mínu fyrsta barni í byrjun maí 2017, settur dagur er 6 maí. Ég er svo ótrúlega spennt fyrir þessu öllu saman. Allt hefur gengið rosalega vel og ég er núna komin rúmlega 18 vikur á leið. Ég fann fyrir smá ógleði og þreytu fram að 12 viku og hafði ekki mikla orku í æfingar og lét vinnuna bara duga. En svo hefur mér bara liðið vel eftir það og er farin að fá orku aftur til að æfa og er að fara hægt af stað aftur.
-
Ég passa mig að drekka vel af vatni. Það er líka gott fyrir húðina sem er að teygjast.
-
Passa mig að hafa engar öfgar í æfingum og klára mig ekki í settum ef ég er að lyfta. Öll liðamót eru mýkri og allt viðkvæmara á þessum tíma. Einnig fylgjist ég vel með púlsinum.
-
Borða hollt og reglulega.
-
Sef nóg, ég reyni núna að ná átta tímum.
-
Tek inn holla fitu bæði úr fæðu, t.d. laxi, avocado og möndlum og tek omega 3 bæði á morgana og á kvöldin.
Ég er vön að lyfta og hef gert það í mörg ár. Hef alltaf verið í íþróttum svo ég held mínu striki eins lengi og ég treysti mér til. Finn samt strax að ég ræð ekki við eins mikla þyngd og venjulega og er ekki að klára mig í settum. Fer líka mikið í spinning og passa mig þar að púlsinn fari ekki of hátt. Er svo að hugsa um að prófa meðgönguyoga eða meðgöngusund þegar á líður.”
Hér kemur svo uppskrift af múffum með eplum og kanil sem Heiða deildi með okkur.
Hitið ofnin í 200°C
- 4 bollar haframjöl (ég nota glutein free hafra frá Urtekram, fæst m.a. í Hagkaup, Krónunni, Nettó og Samkaup)
- 1 skvísa Ella´s epla- og banana barnamauk
- 4 egg
- 4 lítil eða 2 stór epli skorin í litla bita (ég hafði hýðið með, val)
- 1 kúfuð msk grísk jógúrt (má nota hreina jógúrt eða súrmjólk)
- 1 msk sukrin sykur eða stevia sykur (má sleppa)
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- 2-3 tsk kanill
- smá klípa af maldon salti mulið yfir
- 4 msk rúsínur má sleppa.
Öllu hrært saman í einni skál með sleif og gott að setja í muffins form með tveimur skeiðum og bakað í 20 mín. Ég set ýmist í pappaform eða silikon form. Þær eru bestar heitar með smjöri og osti. Annars er hægt að grípa þær með sér í nesti á morgnana einar og sér til að hafa með kaffinu eða einum ísköldum Hámark.
Hægt er að nálgast þessa uppskrift og margar fleiri inná www.heidiola.is
Við þökkum Heiðu góð ráð og vonum að meðgangan gangi að óskum.
by Mamman | 6.12.2016 | Uppskriftir
Ostur, í hvaða mynd sem er, er í miklu uppáhaldi hjá mér. Það á einnig við um kartöflur og ég gæti mögulega borðað þær og ost í öll mál. Cheddar ostur er í sérstöku uppáhaldi hjá mér, enda er hann bragðsterkur og bragðbætir nánast alla rétti sem hann er settur í. Þessi kartöfluréttur getur staðið bæði sem meðlæti og einn og sér en hann er svolítið tímafrekur þar sem það þarf að baka kartöflurnar fyrst. Engu að síður er hann mjög ljúffengur, einfaldur og ódýr.
Uppskrift
- 4 bökunarkartöflur
- 1 tsk ólívuolía
- 3 msk smjör
- ½ bolli grísk jógúrt
- 3 msk súrmjólk (buttermilk, 1 bolli mjólk og 1msk sítrónusafi)
- ½ tsk salt
- ¼ tsk pipar
- ¾ tsk vorlaukur
- ½ tsk hvítlauksduft
- ½ tsk laukduft
- ½ tsk dill
- ½ tsk paprikuduft
- 1 ½ bolli eldað spergilkál
- 1 bréf beikon (ef vill)
- 1 bolli Cheddar ostur
Aðferð
Hitið ofninn á 210 gráður og bakið kartöflurnar í 45-60 mínútur.
Leyfið þeim svo að kólna aðeins svo auðveldara sé að meðhöndla þær.
Steikið beikon í ofninum þar til það er stökkt og skerið svo eða klippið í litla bita.
Skerið kartöflurnar í tvennt langsum, og skafið aðeins upp úr þeim en skiljið eftir nóg í hliðunum og á botninum til að þær falli ekki saman.
Bætið smjörinu við innvolsið og búið til kartöflumús.
Bætið svo restinni af innihaldsefnunum saman við en notið aðeins ¾ af ostinum.
Fyllið kartöflurnar af músinni og dreifið afganginum af ostinum yfir og bakið í ca 20-25 mínútur á 180 gráðum eða þar til karftöflurnar eru orðnar heitar í gegn og osturinn er bráðnaður og örlítið farinn að fá gullinn lit.
Berið strax fram með salati (ef á að borða eitt og sér) og ég mæli hiklaust með að notast við sinneps- og graslaukssósu eða hvítlaukssósu til að færa réttinn upp á næsta plan.
Bon apetit!
Karlotta Jónsdóttir
by Mamman | 4.12.2016 | Uppskriftir
Nú eru jólin framundan og eins og vanalega er bókaflóðið mikið og margar bækur sem heilla. Ég verð að segja fyrir mína parta að þegar ég heyrði af þessari bók, Eldhús grænkerans varð ég strax mjög heilluð og hún er mjög ofarlega á mínum lista. Ég hef verið að minnka kjötát og hallast alltaf meira að því að gerast grænmetisæta. Ég mæli með þessari bók ef þú ert líka í þessum hugleiðingum því hún er svo sannarlega þess virði. Þú þarft svo sem ekkert að vera grænmetisæta eða langa til þess að gerast slík til að fjárfesta í þessari bók. Það eitt er nóg að vilja innleiða meira grænt og hollt inní þitt líf. Ég náði tali af Katrínu Rut sem er ein þriggja kvenna sem kom að því að gera þessa bók að veruleika. Höfundarnir eru þrjár grænmetisætur, Hanna Hlíf Bjarnadóttir, Rut Sigurðardóttir og Katrín Rut Bessadóttir þær vinna þessa bók saman af alúð, Eldhús grænkerans.
Hver er forsaga Eldhúss grænkerans?
Við Hanna kynntumst fyrir fyrir mörgum árum á Akureyri en leiðir okkar lágu síðan alltaf saman aftur og aftur fyrir algera tilviljun. Ég byrjaði síðan að vinna á Gestgjafanum árið 2013 og okkur vantaði lausapenna til að gera mat fyrir grænmetisætur. Þá hafði ég samband við Hönnu og hún sló til! Rut byrjaði síðan á ljósmyndadeild Birtíngs. Þegar við Hanna vorum komnar af stað með hugmyndina höfðum við samband við Rut, sem er líka grænmetisæta, og hún var strax til í verkefnið. Síðan töluðum við við stelpurnar í Sölku sem tóku strax vel í bókina og þá fór boltinn að rúlla og nú ári síðar er bókin komin út!
Eruð þið allar vinkonur og grænmetisætur?
Já við erum vinkonur 🙂
Ég hætti að borða kjöt um síðustu áramót, Rut hefur verið grænmetisæta í 3 ár og er næst okkur því að vera vegan. Hanna hefur verið grænmetisæta í meira en 30 ár. Við Rut höfum óbilandi matarást á Hönnu svo hver tökudagur var þvílík veisla. Hanna eldaði allan matinn og er höfundur uppskrifta, ég hélt utan um textann og var stílisti.
Hér er finna uppskrift úr bókinni, ein af mörgum girnilegum.
Graskerssúpa með reyktum keim
Fyrir 4.
- 1 lítið grasker (butternut), u.þ.b. 300 grömm
- 1 msk. olía
- 3 msk. smjör eða vegansmjör
- 1 laukur, saxaður
- 2 msk. grænmetiskraftur eða 1-2 grænmetisteningar
- 200 ml vatn
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 tsk. malaður pipar
- 2 tsk. hot madras karrí
- 1 ½ tsk. reykt paprika
- 1 tsk. kanill
- 1 tsk. turmerik
- 400 ml kókosmjólk (1 dós)
- 1 dl Smokey Mesquite BBQ-sósa frá Stubbs (getið notað hvaða BBQ sósu sem er en þessi gefur mjög gott reykt bragð)
- 50 g reyktur ostur, eða sterkur cheddar – eða veganostur að eigin vali
- 150 ml rjómi eða veganrjómi
- 1-2 msk. tamarisósa
- 4-5 msk. rifinn appelsínubörkur
Hitið ofninn í 230°C. Skerið graskerið í tvennt, smyrjið sárið með olíu og bakið í ofni í u.þ.b. 40 mín. eða þar til kjötið er orðið mjúkt. Bræðið smjör í potti við meðalhita og mýkið lauk í 2-3 mín. Skafið kjötið úr graskerinu og bætið í pottinn ásamt grænmetiskraftinum og vatni. Setjið hvítlauk og annað krydd saman við ásamt kókosmjólkinni. Bætið BBQ-sósunni og ostinum við og látið samlagast við vægan hita í um 10 mín. Hellið þá rjómanum út í og hitið að suðu. Lækkið hitann. Rífið appelsínubörk yfir, smakkið til með pipar. Berið fram með sýrðum rjóma og krydduðum kjúklingabaunum.
Paprikukryddaðar kjúklingabaunir
- 150 g kjúklingabaunir, soðnar
- 1 msk. olía
- ½ tsk. sjávarsalt
- 1 tsk. reykt paprikuduft
- ½ tsk. chiliduft
Skolið og þerrið baunirnar. Setjið þær á bökunarpappír, hellið olíu yfir og veltið þeim upp úr olíunni. Stráið salti, paprikudufti og chilidufti jafnt yfir baunirnar. Bakið í u.þ.b. 20 mín, snúið baununum við og bakið í 15 mín. til viðbótar eða þar til þær eru orðnar stökkar.
Njótið!